Póstþjónusta

Mánudaginn 25. febrúar 2002, kl. 17:18:12 (5014)

2002-02-25 17:18:12# 127. lþ. 81.14 fundur 168. mál: #A póstþjónusta# (heildarlög) frv. 19/2002, forsrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 81. fundur, 127. lþ.

[17:18]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar):

Herra forseti. Ég verð að segja út af þessari spurningu að ég sakna þess en það er bara vegna þess að ég er svo hræðilega íhaldssamur (JB: Já.) og það er sjálfsagt það sem hrjáir okkur báða. En það er margt af þessu tagi sem er að fara forgörðum og úr hinni íslensku stjórnartilveru sakna ég þess mest að hreppstjórarnir skuli vera liðnir undir lok. Sú stétt var elsta valdastétt landsins, jafngömul byggð í landinu, án þess að það komi þessu máli við. Samt býst ég við að hreppstjórar hafi einhvern tíma borið út póst. Ég á reyndar ættir að rekja til pósta og er þess vegna viðkvæmur fyrir þeim svo að ég monti mig hér í salnum af Hannesi Jónssyni á Núpsstað, ömmubróður mínum, sem var landsfrægur póstur og fór heljarferðir, ekki í pósthús heldur milli bæja yfir jökulár og reyndar hljóp jökul meðan gos var undir svo frægt varð.

Ég tek undir með hv. þm. að ég sakna þess að pósthús sé ekki lengur með í textanum en ég fæ engu um það ráðið, býst ég við.