Stefna í byggðamálum 2002--2005

Þriðjudaginn 26. febrúar 2002, kl. 14:26:52 (5059)

2002-02-26 14:26:52# 127. lþ. 82.5 fundur 538. mál: #A stefna í byggðamálum 2002--2005# þál., iðnrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 82. fundur, 127. lþ.

[14:26]

Iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég held að það sé ekki rétt að tala um þetta þannig að fallið hafi verið frá þessu markmiði. Hins vegar er það rétt hjá hv. þm. að þessi texti er ekki inni í þessari tillögu sem nú er til umfjöllunar. Það má kannski segja að ástæðan sé sú að við ætlum frekar að láta verkin tala.