[prenta uppsett í dálka] 82. fundur, 127. lþ.
Einar Már Sigurðarson (andsvar):
Herra forseti. Það er rétt í byrjun að fagna því að nú skulum við ræða byggðaáætlun fyrir árin 2002--2005. Hins vegar er nauðsynlegt að vekja athygli á því að þessi tillaga er því miður ansi seint fram komin og þess vegna m.a. var ekki hægt að gera ráð fyrir fjármunum til þeirra ýmsu ágætu verkefna sem er getið í áætluninni í þeim fjárlögum sem við störfum nú eftir. Því er nauðsynlegt að hæstv. iðnrh. upplýsi okkur um það í fyrsta lagi hvað gert sé ráð fyrir í þessum tillögum að mikill kostnaður falli til á þessu ári og hvort hæstv. ráðherra hafi þá tryggt það innan stjórnarflokkanna að þær breytingar verði á gerðar með fjáraukalögum í haust sem þarf til þess að þær tillögur nái fram að ganga.
Einnig er nauðsynlegt, herra forseti, nú strax í upphafi þessarar umræðu að hæstv. iðnrh. tjái þingheimi hvernig staða þessa máls er í raun og veru, þ.e. hvaða afgreiðslu þetta frv. fékk í þingflokkum stjórnarflokkanna vegna þess, herra forseti, að það hefur komið fram í fjölmiðlum frá ýmsum hv. þm. stjórnarflokkanna að þessar tillögur voru ekki kynntar stjórnarflokkunum áður en þær voru í kynntar í fjölmiðlum.