[prenta uppsett í dálka] 82. fundur, 127. lþ.
Hjálmar Árnason (andsvar):
Herra forseti. Ég get svarað því afskaplega skýrt að ég mun viðra þessar skoðanir innan iðnn. Ég vek hins vegar athygli á því að ekki verður tekin ákvörðun um að flytja stofnanir á einum degi. Ég mun hins vegar taka það til umræðu sem pólitíska stefnumörkun. Ég mun kanna viðbrögð við því innan iðnn. og að sjálfsögðu eiga þar allir flokkar sína fulltrúa. En ætli það sé ekki rétt að skilja málið eftir núna í spennu fyrir hv. þm. Við skulum sjá hverjar lyktir verða þegar málið kemur frá iðnn.