[prenta uppsett í dálka] 82. fundur, 127. lþ.
Iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (andsvar):
Hæstv. forseti. Ekki ætla ég að gera lítið úr störfum fjárln. og vil nota þetta tækifæri og þakka fyrir margar góðar tillögur sem þaðan hafa komið um byggðamál.
En ég hlýt að minna hv. þm. á að hversu svo sem fjárln. er mikilvæg þá vinnur hún nokkuð sem heitir fjárlagafrv. Og með því að hafa það fyrirkomulag sem ég gat um í fyrra andsvari minni þá munu þær tillögur sem birtast í þessari þáltill. birtast í fjárlagafrv. Hv. þm. þarf því ekki annað en taka afstöðu til þess sem þar verður lagt til og mun það koma frá hverju ráðuneyti fyrir sig að sjálfsögðu.