[prenta uppsett í dálka] 82. fundur, 127. lþ.
Einar Oddur Kristjánsson (andsvar):
Herra forseti. Árlega þegar við förum yfir fjárlögin hef ég farið yfir þessa útþenslu og fjölgun ríkisstarfsmanna. Þessi fjölgun, þessi útþensla, er staðreynd. Hún er bara staðreynd sem liggur á borðinu. Ég get sýnt honum mjög mikla og ítarlega skýrslu eftir Harald L. Haraldsson hagfræðing sem sýnir nákvæmlega hvar þessi störf eru niður komin. Þau eru öll í Reykjavík.
Ég sagði líka áðan, herra forseti, að þrátt fyrir viðleitni sumra þingmanna til að reyna að stöðva þá þróun hefur það ekki tekist og hún væri staðreynd. Og ef svo héldi fram sem horfði, þá mundi ríkisbáknið halda áfram að þenjast út og því væri mjög nauðsynlegt að kortleggja hvort það þyrfti endilega að vera í Reykjavík, hvort við gætum ekki ---- ég veit við getum það --- komið stórum hluta þeirrar útþenslu, sem er kannski ekki hægt að koma í veg fyrir, fyrir á landsbyggðinni. Ég vona að hv. þm. hafi tekið eftir því um hvað ég var að tala. Ég var ekki að ræða um hitt, um fjárlögin. Ég skal ræða þau við hann undir öðrum kringumstæðum enda þarf ég meira tóm til þess en þessa einu mínútu.