Stefna í byggðamálum 2002--2005

Þriðjudaginn 26. febrúar 2002, kl. 18:17:24 (5165)

2002-02-26 18:17:24# 127. lþ. 82.5 fundur 538. mál: #A stefna í byggðamálum 2002--2005# þál., KPál (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 82. fundur, 127. lþ.

[18:17]

Kristján Pálsson (andsvar):

Herra forseti. Það er út af fyrir sig ekkert launungarmál að ég var með fyrirvara á þessari tillögu í þingflokki Sjálfstfl. eins og ýmsir fleiri. Sá fyrirvari þýðir ekki að við getum ekki stutt þáltill. þegar upp verður staðið og hún búin að fara í gegnum nefnd. Við viljum að sjálfsögðu að hugmyndir okkar að breytingum komi þá fram og að nefndin hafi möguleika á því að vinna úr þeim. Ef hún hefur áhuga á að vinna úr þeim og það verði í þeim anda sem við viljum, þá er ekkert því til fyrirstöðu að við styðjum þáltill. þegar hún kemur að endingu til lokaafgreiðslu.

Varðandi annað sem hv. þm. talaði um, þ.e. Byggðastofnun. Það er náttúrlega öllum ljóst að Byggðastofnun hlýtur með þessu áframhaldi að veikjast og að endingu verður starfsemi hennar það lítil að hún skiptir ekki lengur máli. Ef nýsköpunardeildin og ... (Forseti hringir.) Ég klára þetta á eftir, herra forseti.