[prenta uppsett í dálka] 82. fundur, 127. lþ.
Kristján Pálsson (andsvar):
Herra forseti. Varðandi fjarvinnsluverkefnin, þá verð ég að viðurkenna að ég hef ekki lesið þetta svar. En ég veit að í fjárln. var verið að reyna að veita fé út um landið til þess að styrkja fjarvinnslustöðvarnar. Ef ég man rétt þá var ein á Hofsósi og ein á Djúpavogi sem sérstaklega var veitt fjármunum í af fjárln., og í kringum þessar fjarvinnslustöðvar var starfandi fólk sem var að missa störf sín vegna verkefnaskorts eða fjárskorts. Þannig hefur verið reynt að halda uppi störfum þessara fjarvinnslustöðva þó svo að ekki hafi bæst við mikið af fólki á síðustu árum.