Meðferð við vímuvanda fanga

Miðvikudaginn 27. febrúar 2002, kl. 16:02:31 (5321)

2002-02-27 16:02:31# 127. lþ. 84.17 fundur 434. mál: #A meðferð við vímuvanda fanga# fsp. (til munnl.) frá dómsmrh., ÞKG
[prenta uppsett í dálka] 84. fundur, 127. lþ.

[16:02]

Þorgerður K. Gunnarsdóttir:

Herra forseti. Ég vil líkt og aðrir þingmenn hér á undan þakka hv. þm. Katrínu Fjeldsted fyrir að hafa vakið máls á þessu tiltekna máli, vímuefnavanda fanga. Það er rétt sem fram kom að allshn. fór í heimsókn á Litla-Hraun í janúar. Margt athyglisvert, að mínu mati, kom þar fram. Aðbúnaður þar hefur stórlega batnað, a.m.k. síðan ég kom þangað á sínum tíma þegar ég var í laganámi. Engu að síður vakti margt mann til umhugsunar. Það er eitt að dæma menn til refsingar. Síðan er annað hvað tekur við þegar inn fyrir fangelsismúrana er komið. Ég held að margt hafi verið vel gert. Það kom fram í máli hæstv. dómsmrh. að verið er að vinna markvisst að ákveðnum málefnum. Við verðum engu að síður að gera okkur grein fyrir því að endurkoma fanga, ef svo má að orði komast, er hærri á Íslandi en annars staðar. Ég tel að við eigum að setja okkur markmið líkt og gert hefur verið til að mynda í heilbrigðisáætlun. Við eigum að reyna að lækka það hlutfall fanga sem kemur inn í fangelsin hér líkt og annars staðar.