[prenta uppsett í dálka] 86. fundur, 127. lþ.
Vilhjálmur Egilsson:
Virðulegi forseti. Hv. þingmenn hafa komið hér og lýst áhyggjum yfir því að fara eigi að loka deildum í fangelsunum. Ég velti því fyrir mér að ekki hefur komið fram hvort hv. þm. hafi áhyggjur af því hvort fangarnir væru lokaðir úti eða inni. En það sem mér finnst kannski vanta í umræðuna er hvað verið er að dæma marga í fangelsi og hversu lengi og hver þörfin er fyrir öll þessi fangelsi. Getur ekki verið að allar þessar herðingar sem menn eru að tala um á refsingum og þörf fyrir sífellt harðari refsingar fyrir hin og þessi brot leiði til þess að farið sé að dæma allt of marga í allt of langa fangelsisdvöl og að skoða þurfi þessi mál í heildarsamhengi og velta því fyrir sér hvort þetta sé raunveruleg ástæða fyrir þessu öllu saman?