[prenta uppsett í dálka] 86. fundur, 127. lþ.
Kristján Pálsson (andsvar):
Herra forseti. Ég verð að leiðrétta það að ég sagðist ekki vera andvígur þeirri tillögu sem sjútvrh. hefði lagt hér fram um veiðileyfagjald. Ég sagðist ávallt hafa verið andvígur því en sætti mig hins vegar við það vegna þess að ég liti á þetta sem leið til sátta. Ég hef alltaf litið svo á að það þyrfti að teygja sig eitthvað til að ná sáttum. (Gripið fram í.) Það verða ekki allir ánægðir.
Ef allir ætla að sættast verða ekki allir ánægðir með allt sem þeir fá. Það er ástæðan fyrir því að ég samþykki veiðileyfagjald. Ég hef aftur á móti verið andvígur því að leggja sértakan skatt á útgerðina. Ég reikna með að hv. þm. hafi heyrt það.
Ég lít svo aftur á móti svo á að þegar um er að ræða leigu aflaheimilda á frjálsum markaði sé það allt öðruvísi á milli tveggja einstaklinga en þegar það væri boðið upp í gegnum sveitarfélög eða opinbera aðila, þ.e. ríkisumsvif í kringum úthlutun aflaheimilda.