Stjórn fiskveiða

Mánudaginn 04. mars 2002, kl. 22:00:16 (5517)

2002-03-04 22:00:16# 127. lþ. 86.7 fundur 562. mál: #A stjórn fiskveiða# (veiðigjald o.fl.) frv., sjútvrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 86. fundur, 127. lþ.

[22:00]

Sjávarútvegsráðherra (Árni M. Mathiesen) (andsvar):

Herra forseti. Hv. þm. Gísli S. Einarsson hefur, eins og fleiri félagar í Samfylkingunni, áhyggjur af því að gjaldið sé ekki nægilega hátt (Gripið fram í: Já.) og að kostnaðurinn sé ekki nægjanlega vel skilgreindur, það vanti eitthvað í þegar verið er að skilgreina kostnaðinn og hann gerir athugasemd við að einungis er talað um það í greinargerðinni að þegar allt verði komið til skila standi gjaldið einungis undir þremur fjórðu af kostnaði við rannsóknir Hafrannsóknastofnunarinnar.

Það er nú einu sinni svo að hluti af þeim rannsóknum sem fara fram hjá Hafrannsóknastofnuninni stendur ekki í beinu samhengi við atvinnugreinina, við útveginn, heldur er um að ræða grundvallarrannsóknir á lífríkinu í kringum Ísland sem við sem fullvalda þjóð leggjum auðvitað metnað okkar í að framkvæma alveg á sama hátt og við framkvæmum rannsóknir á öðru í lífríkinu í kringum okkur án þess að það tengist neitt einum einstökum atvinnuvegi. Enda er það reyndar líka einstakt að við ætlum einum atvinnuvegi að standa undir svo stóru hlutfalli af kostnaði við rannsóknir sem honum tengjast á einhvern hátt.

Hann spyr jafnframt um 1.500 tonnin sem eiga að vera í 9. gr. frv. og eru hluti af 12 þús. tonnunum. Hluti af því sem fram hefur komið í sambandi við alla þessa vinnu er að gert er ráð fyrir því að breytingar verði í sjávarútvegi í framtíðinni, hagræðing og að störfum muni fækka, að það geti komið niður á einhverjum byggðum og að það þurfi að einhverju leyti að bregðast við því. Ég get ekki svarað því nákvæmlega nú hvar það verður eða hvenær. En ég geri ráð fyrir að að því muni koma.

Síðan er ég ekki tilbúinn að skrifa nákvæmlega upp á tölfræðina sem hv. þm. fór með hérna. Mér heyrðist hann vera með tölur, beinar tölur, en ekki hlutföll sem þarf að vera ef bera á saman þróun milli tímabila þar sem aflinn í heild er mismunandi.