Stjórn fiskveiða

Mánudaginn 04. mars 2002, kl. 22:04:27 (5519)

2002-03-04 22:04:27# 127. lþ. 86.7 fundur 562. mál: #A stjórn fiskveiða# (veiðigjald o.fl.) frv., sjútvrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 86. fundur, 127. lþ.

[22:04]

Sjávarútvegsráðherra (Árni M. Mathiesen) (andsvar):

Herra forseti. Það er ánægjulegt að hv. þm. skuli vera svona hreinskilinn í tillögum sínum um að hækka gjaldið.

Varðandi hins vegar þær tölur sem hann nefndi og vitnaði í Harald Líndal Haraldsson þá veit hv. þm. örugglega að ég hef gagnrýnt mjög skýrslu hans og meðferð hans á þessum tölum.