Stjórn fiskveiða

Mánudaginn 04. mars 2002, kl. 22:23:34 (5527)

2002-03-04 22:23:34# 127. lþ. 86.7 fundur 562. mál: #A stjórn fiskveiða# (veiðigjald o.fl.) frv., sjútvrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 86. fundur, 127. lþ.

[22:23]

Sjávarútvegsráðherra (Árni M. Mathiesen) (andsvar):

Herra forseti. Það er út af fyrir sig rétt hjá hv. þm. að það er mjög sjaldgæft að við hæstv. fjmrh. séum ósammála og því rétt hjá hv. þm. að vekja athygli á því, en eins og hv. þm. væntanlega gerir sér grein fyrir miðað við niðurstöðu þessara orðaskipta, þá er það algengara að við hv. þm. séum ósammála.