Stjórn fiskveiða

Mánudaginn 04. mars 2002, kl. 23:01:05 (5538)

2002-03-04 23:01:05# 127. lþ. 86.7 fundur 562. mál: #A stjórn fiskveiða# (veiðigjald o.fl.) frv., LB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 86. fundur, 127. lþ.

[23:01]

Lúðvík Bergvinsson (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég skal nú bara játa það á mig góðfúslega að ég áttaði mig ekki alveg á því á hvaða vegferð hv. þm. var. Ég verð að segja það alveg eins og er.

Ef ég skil þetta frv. rétt þá er verið að horfa til framtíðar. Það er rétt hjá hv. þm. að 1984 varð sá grunnur til sem núverandi kvótakerfi byggir á. Hins vegar eru lögin að meginstofni til frá 1990. Þetta er alveg rétt. Þetta er fortíðin. Ég held að við deilum ekki um það. Ég held að við þekkjum þetta. Hins vegar liggja núna fyrir hugmyndir um hvernig við ætlum að skipa þessum hlutum til lengri tíma, fram á við, fram í tímann, hvernig við ætlum að festa þetta í sessi. Við hv. þm. erum sammála, og flestir, um að það þarf að stjórna þessum veiðum með einhverjum hætti. Um það er ekki deilt. Fram að 1984 voru mestan part frjálsar veiðar þó einstaka tegundir hafi verið í kvóta. Um það er ekki deilt.

Ég verð að segja það alveg eins og er, virðulegi forseti, að mér finnst við núna árið 2002 standa á ákveðnum tímapunkti hvað það varðar hvernig við ætlum að hafa þessa hluti í framtíðinni, en ekki hvernig hlutirnir voru í fortíðinni, hvort fella hefði þurft gengið í fortíðinni eða varðandi það hvernig menn ætluðu að hafa hlutina í fortíðinni. Við erum að horfa núna fram í tímann. Við erum komin inn á ákveðið kerfi. Hv. þm. sneri því síðan einhvern veginn á haus í röksemdafærslu sinni og sagði að það kerfi sem við værum komin inn í hefði ekki skilað neinum árangri. Hann vildi hafa kerfi sem skilar árangri en var þó andvígur því að leita nýrra leiða í því að stjórna fiskveiðunum.

Virðulegi forseti. Hv. þm. opnaði þessa umræðu á því að segja að hún væri dálítið skrýtin, en ég verð að segja það alveg eins og er að hafi hún verið skrýtin áður en hv. þm. tók til máls þá er enn erfiðara að botna í henni núna.