Landgræðsla

Fimmtudaginn 07. mars 2002, kl. 15:53:17 (5762)

2002-03-07 15:53:17# 127. lþ. 92.6 fundur 584. mál: #A landgræðsla# (heildarlög) frv., DrH (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 92. fundur, 127. lþ.

[15:53]

Drífa Hjartardóttir (andsvar):

Herra forseti. Hvað varðar landgræðsluáætlunina er ákveðin aðferðafræði tíunduð hér. Aðalatriðin eru náttúrlega að stöðva hraðfara jarðvegseyðingu sem er allt of mikil, gróðurvernd, stjórn landnýtingar, uppgræðsla lands, einkum á láglendi, hefting landbrots, upplýsingaöflun, rannsóknir, þróun, fræðsla og ráðgjöf. Í þessari áætlun er líka rætt um að halda áfram þeim mikilvægu verkefnum sem hafa verið unnin í samstarfi við íslenska bændur sem skiptir ekki litlu máli. Það eru verkefni sem heita ,,Betri bú`` og ,,Bændur græða landið``. Ég tel þau mjög mikilvæg og sérstaklega góð fyrir samstarf bænda og Landgræðslunnar þar sem þetta starf styrkir bændurna í heimasveit þeirra.