Samgönguáætlun

Miðvikudaginn 20. mars 2002, kl. 14:02:40 (6305)

2002-03-20 14:02:40# 127. lþ. 100.4 fundur 384. mál: #A samgönguáætlun# frv. 71/2002, JB (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 100. fundur, 127. lþ.

[14:02]

Jón Bjarnason:

Herra forseti. Hér er um stórmál að ræða en ég tel að bæta megi úr í nokkrum atriðum, bæði varðandi verklag við samgönguáætlunina og eins líka við skipan samgönguráðs og hlutverk þess, og ég óska eftir því að milli 2. og 3. umr. verði málið tekið upp í hv. samgn. og athugað hvort ekki megi færa það í þann búning að fullt samkomulag geti orðið um það.