[prenta uppsett í dálka] 104. fundur, 127. lþ.
Landbúnaðarráðherra (Guðni Ágústsson):
Hæstv. forseti. Gamalt máltæki segir: Sveltur sitjandi kráka en fljúgandi fær. Að selja er bissniss og þar verða menn að vanda sig og ná árangri frá manni til manns. Það er mikið verkefni. Því miður finnst mér að afurðastöðvar bænda fyrir sauðfjárafurðir hafi ekki staðið sig sem skyldi í þeirri miklu samkeppni sem er t.d. á kjötmarkaði innan lands. Það er auðvitað sterkasti markaður íslenska sauðfjárbóndans. Þar verður hann að halda vöku sinni um leið, eins og ég sagði áðan, og hann gefur ríkulegan gaum þessum dýru mörkuðum, sérmörkuðum fyrir það litla magn sem við höfum til útflutnings.
Mistök eru auðvitað til að læra af. Mistök eru mannleg og ég mun eiga, eins og ég hef alltaf gert í ráðherratíð minni, samstarf og viðræður við forustumenn afurðastöðvanna og fylgja eftir því (Forseti hringir.) að þeir standi sig í stykkinu.