Merkingar á lambakjöti til útflutnings

Mánudaginn 25. mars 2002, kl. 15:33:36 (6565)

2002-03-25 15:33:36# 127. lþ. 104.1 fundur 429#B merkingar á lambakjöti til útflutnings# (óundirbúin fsp.), KVM
[prenta uppsett í dálka] 104. fundur, 127. lþ.

[15:33]

Karl V. Matthíasson:

Við skulum vona, herra forseti, að allt gangi eftir og þeir sem eru að framleiða lambakjöt og selja til útflutnings geri það þannig að þar verði eftirsóknarverð og mikið notuð vara í framandi löndum, bæði Evrópu og víðar.

Ég þakka hæstv. ráðherra aftur fyrir að hann hyggist bregðast mjög vel við í þessu máli. Ég vona að sú ætlan hans takist og að þetta verði til þess að við getum snúið vörn í sókn varðandi útflutning á lambakjöti. Ég tek undir það líka, sem fram hefur komið, að þetta er ein sú albesta vara sem um getur norðan Alpa og þó sunnar væri farið.