Fundarstjórn forseta

Mánudaginn 25. mars 2002, kl. 15:35:01 (6566)

2002-03-25 15:35:01# 127. lþ. 104.93 fundur 436#B fundarstjórn forseta# (um fundarstjórn), landbrh.
[prenta uppsett í dálka] 104. fundur, 127. lþ.

[15:35]

Landbúnaðarráðherra (Guðni Ágústsson):

Hæstv. forseti. Ég kvarta ekki oft en þegar svona fast er lamið í bjölluna missi ég heyrn um stund. Ég ætlaði að biðja forseta að munda hamarinn vægar en hann gerði hér áðan. Það þarf ekki að lemja alveg svona fast til að maður fari úr ræðustólnum.