Upplýsingagjöf um álversframkvæmdir

Fimmtudaginn 04. apríl 2002, kl. 10:48:09 (6885)

2002-04-04 10:48:09# 127. lþ. 109.92 fundur 454#B upplýsingagjöf um álversframkvæmdir# (aths. um störf þingsins), VE
[prenta uppsett í dálka] 109. fundur, 127. lþ.

[10:48]

Vilhjálmur Egilsson:

Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þær upplýsingar sem hv. formaður iðnn. kom með áðan um umfjöllun nefndarinnar um málið. Ég fyrirgef honum hér með að hafa ekki mætt á fund hv. efh.- og viðskn. þar sem hann átti að sitja á þeim tíma.

Í sambandi við það sem hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon ræddi um áðan, um metnaðarleysi þingmanna varðandi það að fá þetta mál upplýst, þá verð ég að viðurkenna að ég hef áhyggjur af metnaðarleysi hv. þingmanna Vinstri grænna varðandi það að afgreiða málið. Ég hygg að metnaður flestra þeirra sem hér eru í salnum standi til þess að afgreiða það og sjá til þess að fyrirhuguð virkjun rísi. Ég hef miklar áhyggjur af því að hv. þm. Vinstri grænna séu að reyna að draga úr metnaði okkar hinna í sambandi við það mál.

Ég tel að iðnn. hafi staðið vel að þessu. Allt það sem hefur verið rætt og verið gagnrýnisefni kom fram á þeim fundi sem iðnn. hélt í morgun og síðan mun iðnn. að sjálfsögðu gefa skýrslu um málið eins og til hefur staðið, en metnaður þingmanna er mikill almennt séð til þess að klára þetta mál.