Flokkun og mat á gærum og ull

Mánudaginn 08. apríl 2002, kl. 11:17:43 (7058)

2002-04-08 11:17:43# 127. lþ. 114.20 fundur 293. mál: #A flokkun og mat á gærum og ull# (ullarmat) frv. 48/2002, KVM
[prenta uppsett í dálka] 114. fundur, 127. lþ.

[11:17]

Karl V. Matthíasson:

Herra forseti. Það er svo sem ekki miklu við þetta að bæta. Ég vil bara lýsa því yfir að ég, eins og hv. þm. Sigríður Jóhannesdóttir, félagi minn í Samfylkingunni, skrifaði undir þetta nál. landbn. Við teljum að það sé bara verið að hagræða innan þessarar greinar. Mér sýnist ekki af veita. Það er orðið nokkuð mikið um alls konar milliliðakerfi í tengslum við landbúnaðinn sem er farið að verða áþján fyrir bændur. Maður er farinn að upplifa það þannig. Síðustu fréttirnar, herra forseti, af grænmetismálum gefa t.d. tilefni til að segja þessi orð hér.

Eins og ég segi styðjum við þetta, ég og hv. þm. Sigríður Jóhannesdóttir og náttúrlega aðrir í þessari nefnd. Við teljum að þekking og færni í að meta ull og skoða muni alls ekki hverfa þó að þetta verði samþykkt. Ullin mun áfram verða metin, skoðuð og dæmd.