Flokkun og mat á gærum og ull

Mánudaginn 08. apríl 2002, kl. 11:25:07 (7063)

2002-04-08 11:25:07# 127. lþ. 114.20 fundur 293. mál: #A flokkun og mat á gærum og ull# (ullarmat) frv. 48/2002, MF (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 114. fundur, 127. lþ.

[11:25]

Margrét Frímannsdóttir (andsvar):

Virðulegi forseti. Ekki varð þessi rökstuðningur til þess að ég skipti um skoðun. Ég er jafnsannfærð eftir sem áður um að Bændasamtökin, afurðastöðvarnar og söluaðilarnir eigi að setja sér þessar reglur sjálfir vegna þess að það er fyrst og fremst þeirra hagur að þessi mál séu í lagi.