[prenta uppsett í dálka] 114. fundur, 127. lþ.
Jóhanna Sigurðardóttir:
Herra forseti. Ég verð að segja að þær upplýsingar sem hér koma fram valda mér miklum vonbrigðum. Ég tel að það muni ekki auka á faglega umfjöllun um efnahagsmál eða þjóðarbúskapinn. Þvert á móti tel ég hættu á að greining á stöðu og þróun efnahagsmála lúti pólitískri forskrift ef á að leggja niður þessa sjálfstæðu stofnun. Það býður heim miklum ágreiningi um trúverðugleik í spám varðandi þróun efnahagslífsins.
Ég sé ekki að það sé nokkur einasta hagræðing í að leggja stofnunina niður og vil spyrja hæstv. utanrrh. hvaða sparnaður er af því að leggja niður þá stofnun og færa verkefnin annað eins og hæstv. ráðherra hefur lýst? Ég lít svo á að hér sé fyrst og fremst um að ræða tilfærslu á verkefnum og með þessu sé fyrst og fremst verið að draga úr faglegri umfjöllun og faglegum spám varðandi þróun efnhagslífs með þeirri breytingu sem ráðherra hér boðar.
Ég spyr hæstv. ráðherra: Er það virkilega svo að á þeim fáu dögum sem eftir lifa af þingi ætlist ráðherrann til að þingið afgreiði málið?