Guðrún Ögmundsdóttir (andsvar):
Virðulegur forseti. Ég get alveg verið sammála því að nauðsynlegt sé að samhæfa, gera hlutina skilvirkari og ekki hafa þá á of mörgum stöðum. Ég hef hins vegar örlitlar áhyggjur af þessu með starfsmennina og kannski er spurning um það hvernig þessi mál hafa verið rædd í þeim stofnunum sem nú á að samhæfa. Það væri því fróðlegt að fá upplýsingar um það hjá hæstv. ráðherra.