Flugmálaáætlun árið 2002

Þriðjudaginn 09. apríl 2002, kl. 18:34:55 (7339)

2002-04-09 18:34:55# 127. lþ. 115.16 fundur 681. mál: #A flugmálaáætlun árið 2002# þál. 27/127, GAK (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 115. fundur, 127. lþ.

[18:34]

Guðjón A. Kristjánsson (andsvar):

Herra forseti. Ég vil aðeins vekja á því athygli að ég tel að Reykjavíkurflugvöllur sé landsbyggðinni afar verðmætur þar sem hann er staðsettur núna. Ef ég veit hins vegar rétt liggur fyrir sú stefnumótun hjá Reykjavíkurlistanum að flugvöllurinn fari árið 2016. Ég vil spyrja hæstv. samgrh. hvort einhverjar viðræður hafi farið fram eða áætlanir gerðar á á hans vegum um það hvað eigi að taka við og hvar flugvöllurinn eigi þá að vera staðsettur. Ég tel að ferðatími innan lands með flugi megi alls ekki lengjast. Með batnandi vegakerfi mun flugið eiga undir högg að sækja og frekari töf eða lengri ferðatími mun ekki verða fluginu til framdráttar.