Steinullarverksmiðja

Þriðjudaginn 09. apríl 2002, kl. 23:58:36 (7408)

2002-04-09 23:58:36# 127. lþ. 115.42 fundur 663. mál: #A steinullarverksmiðja# (sala á eignarhlut ríkisins) frv. 57/2002, iðnrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 115. fundur, 127. lþ.

[23:58]

Iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég biðst afsökunar á því ef ég hef misskilið hv. þm. og gert athugasemd hans neikvæðari en hún var í raun. En hvað það varðar að hugsanlega verði Orkubú Vestfjarða selt og hvort þeim fjármunum yrði varið til uppbyggingar á Vestfjörðum, þá get ég ekki svarað neinu um það á þessu stigi málsins. Ég held að það sé réttast. Þessi þrjú dæmi eru ekki þannig að búið sé að taka ákvörðun til allrar framtíðar heldur eru þetta tilvik sem voru leyst á þennan hátt að þessu sinni og svo verðum við bara að sjá til með framhaldið.