Utanríkismál

Mánudaginn 22. apríl 2002, kl. 10:17:48 (8083)

2002-04-22 10:17:48# 127. lþ. 125.94 fundur 537#B utanríkismál# (aths. um störf þingsins), SAÞ
[prenta uppsett í dálka] 125. fundur, 127. lþ.

[10:17]

Sigríður A. Þórðardóttir:

Herra forseti. Ég tel einboðið eftir að fréttir hafa komið um hugmyndir um breytingar á Keflavíkurflugvelli og breytingar á varnarsamningnum, tvíhliða viðræður sem greint hefur verið frá í fréttum, að haldinn verði fundur í utanrmn. þar sem þessi mál verði tekin til umfjöllunar. Ég mun fara fram á það við utanrrh. þegar hann kemur til landsins úr ferð sinni til Rússlands.