Barnaverndarlög

Mánudaginn 29. apríl 2002, kl. 14:35:29 (8357)

2002-04-29 14:35:29# 127. lþ. 132.2 fundur 318. mál: #A barnaverndarlög# (heildarlög) frv. 80/2002, GÖ (um atkvæðagreiðslu)
[prenta uppsett í dálka] 132. fundur, 127. lþ.

[14:35]

Guðrún Ögmundsdóttir (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Hér er verið að afgreiða heildarlög um barnavernd og þingmenn munu greiða atkvæði um mjög margar brtt. Þingmenn Samfylkingarinnar og eflaust allir þeir þingmenn sem unnu að þessu frv. munu greiða atkvæði með þeim tillögum.