Fátækt á Íslandi

Þriðjudaginn 30. apríl 2002, kl. 10:02:37 (8477)

2002-04-30 10:02:37# 127. lþ. 133.91 fundur 561#B fátækt á Íslandi# (aths. um störf þingsins), forsrh.
[prenta uppsett í dálka] 133. fundur, 127. lþ.

[10:02]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):

Herra forseti. Það er rétt sem hv. þm. nefndi. Ég tjáði henni að tvær ástæður lægju til þess að ég teldi ekki efni til þess að verða við beiðni hennar. Ég teldi engar efnislegar nýjar upplýsingar fram komnar og í annan stað heyrði erindið ekki endilega undir forsrh.