Breyting á frumvarpi um vinnuvernd

Þriðjudaginn 30. apríl 2002, kl. 12:03:00 (8526)

2002-04-30 12:03:00# 127. lþ. 134.93 fundur 564#B breyting á frumvarpi um vinnuvernd# (aths. um störf þingsins), KHG
[prenta uppsett í dálka] 134. fundur, 127. lþ.

[12:03]

Kristinn H. Gunnarsson:

Herra forseti. Það er laukrétt hjá hæstv. forseta að málið er á dagskrá og eðlilegt að menn ræði efnisatriði þess undir þeirri umræðu. Ég held hins vegar að það sé sjálfsagt að menn skoði þau deiluefni sem uppi eru og við reynum að glöggva okkur á þeim. Það er alveg sjálfsagt að beita sér fyrir því að menn skoði það milli 2. og 3. umr. eða eftir atvikum í dag eins og kostur er. En ég held að við ættum að halda okkur við áætlunina um að taka málið fyrir og ræða það.