Leiðrétting við atkvæðagreiðslu

Fimmtudaginn 02. maí 2002, kl. 18:13:10 (8680)

2002-05-02 18:13:10# 127. lþ. 135.94 fundur 572#B leiðrétting við atkvæðagreiðslu# (um fundarstjórn), ÖJ (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 135. fundur, 127. lþ.

[18:13]

Ögmundur Jónasson:

Herra forseti. Ég var heldur seinn á takkann í atkvæðagreiðslu um eitt frv., þ.e. frv. um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum. Ég styð þetta frv. og er umhugað um að sá stuðningur sé sýndur í verki og óska eftir að það verði leiðrétt við atkvæðagreiðsluna.