Framleiðsla, verðlagning og sala á búvörum

Fimmtudaginn 02. maí 2002, kl. 23:06:18 (8728)

2002-05-02 23:06:18# 127. lþ. 135.21 fundur 621. mál: #A framleiðsla, verðlagning og sala á búvörum# (gæðastýrð sauðfjárframleiðsla) frv. 101/2002, EOK (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 135. fundur, 127. lþ.

[23:06]

Einar Oddur Kristjánsson (andsvar):

Herra forseti. Það er alveg skýrt í mínum huga að með því að endurskoða samninginn, taka hann upp á þessu ári, hefur allra hugsun verið sú að því skuli ljúka líka á þessu ári, alveg skýrt, enda þurfa menn ekki að liggja yfir því missirum og árum saman. Þetta er ákveðin ákvörðun. Það er ákveðinn vilji sem kemur þarna fram, og menn munu gera þetta. Það er mjög brýnt og meira að segja höfum við gengið út frá því að þeir muni klára það ekki seinna en í ágústmánuði. Ef niðurstaða samningsins yrði sú að bændur vildu breytingu frá því sem nú er gæti þingið, og ætti, að taka þetta upp strax næsta haust. Það er líka mjög nauðsynlegt.