Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur

Föstudaginn 03. maí 2002, kl. 14:39:07 (8813)

2002-05-03 14:39:07# 127. lþ. 137.5 fundur 520. mál: #A Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur# (gjaldtökuheimildir og náttúrustofur) frv. 92/2002, ÞBack (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 137. fundur, 127. lþ.

[14:39]

Þuríður Backman:

Herra forseti. Vinstri hreyfingin -- grænt framboð efast um að frv. þetta verði til þess að efla náttúrustofurnar og telur skorta hin faglegu rök fyrir þeim breytingum sem það felur í sér. Frv. mætir mikilli andstöðu forsvarsmanna náttúrustofanna auk þess sem veigamiklar athugasemdir hafa komið fram frá Náttúrufræðistofnun Íslands og Náttúruvernd ríkisins.

Vinstri hreyfingin -- grænt framboð mun sitja hjá við atkvæðagreiðsluna. Við fluttum frávísunartillögu sem var felld en við munum sitja hjá við atkvæðagreiðsluna í heild.