Brottfall lagaákvæða um héraðslækna o.fl.

Föstudaginn 03. maí 2002, kl. 14:45:02 (8816)

2002-05-03 14:45:02# 127. lþ. 137.6 fundur 564. mál: #A brottfall lagaákvæða um héraðslækna o.fl.# frv. 93/2002, ÞBack (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 137. fundur, 127. lþ.

[14:45]

Þuríður Backman:

Herra forseti. Með frumvarpinu er lagt til að embætti héraðslækna verði fellt niður. Færa á að mestu verkefni þeirra til yfirlækna heilsugæslustöðvanna í landinu. Með þessari breytingu er m.a. verið að leggja niður einu 100% embættislæknastöðuna á landsbyggðinni. Í stað þess að dreifa verkefnum heilbrrn. og landlæknisembættis út í héruð, þá er stefnt að enn frekari miðstýringu. Héraðslæknisembættin fengu aldrei það vægi í heilbrigðisþjónustunni sem þeim var ætlað og því er ljóst að tímabært var að endurskoða hlutverk þeirra. Í þá vinnu átti að fara í fullu samráði við héraðslækna og heilsugæsluna í stað þess að leggja embættið niður og yfirfæra bæði vinnu og kostnað á yfirlækna heilsugæslustöðvanna. Vinnuálag heilsugæslulækna virðist vera nóg og viðbótarverkefnum ekki á bætandi við núverandi ástand.

Við þingmenn Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs viljum að unnið sé betur að þessu máli og leggjum því til að lögin taki ekki gildi fyrr en 1. janúar 2003. Að öðru leyti munum við sitja hjá við afgreiðslu málsins.