[prenta uppsett í dálka] 9. fundur, 127. lþ.
Kristján Pálsson (andsvar):
Herra forseti. Ég held að við hv. þm. Jón Bjarnason deilum ekkert mikið um það að sumt af því sem við erum að fjalla um hér heyrir undir fjárreiðulög. Aftur á móti eru fjárlögin sem slík áætlun alveg eins og áætlun sveitarfélaga um fjársýslu næsta árs og það er aldrei hægt að gera þetta þannig að það sé nákvæmlega upp á punkt og prik. Þess vegna gera fjárreiðulögin að sjálfsögðu ráð fyrir því að fæstar tölur í sjálfu sér standist. En aftur á móti verður að ætlast til þess að framkvæmdir standist nokkurn veginn þær áætlanir sem gerðar eru. Og það þarf að breyta því að haft sé um það nákvæmt samráð og það fyrir fram.
Ég tek alveg undir það með hv. þm. að ég lít svo á að þegar verið er að breyta fjárlögum í tilfellum þar sem um verklegar framkvæmdir er að ræða, eigi að hafa samráð um það fyrir fram við fjárln.