Guðjón A. Kristjánsson (andsvar):
Herra forseti. Ég hygg að ég sé ekki besti maðurinn til að fletta upp í um sögu landsfunda Sjálfstfl. en skal þó af góðmennsku minni reyna að verða við óskum hv. þm.
Hin seinni ár hef ég fyllilega gert mér grein fyrir því að ef Landssamband ísl. útvegsmanna muni samþykkja að greiða gjald til að viðhalda kvótakerfinu þá mundi slík stefna verða ofan á í Sjálfstfl. Hún hefur orðið það.