Stjórn fiskveiða

Þriðjudaginn 16. október 2001, kl. 15:34:34 (582)

2001-10-16 15:34:34# 127. lþ. 11.5 fundur 3. mál: #A stjórn fiskveiða# (úthlutun aflahlutdeilda o.fl.) frv., GAK (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 11. fundur, 127. lþ.

[15:34]

Guðjón A. Kristjánsson (andsvar):

Herra forseti. Það er auðvitað rétt hjá hv. þm. að Sjálfstfl. hefur tekið þá afstöðu sem hann hefur iðulega hafnað á undanförnum árum, undanförnum þingum, fjölda mörgum stjórnmálafundum og landsfundum, að útgerðarmenn ættu ekki að greiða fyrir auðlindina. Hann hefur horfið frá því.

En hvers vegna hvarf hann frá því? Hann hvarf frá því vegna þess að hin harða andstaða við núverandi kvótakerfi hefur leitt útgerðarmenn að þeirri niðurstöðu að sennilega væri rétt að taka upp einhvers konar vott af gjaldtöku til þess að festa kerfið óbreytt í sessi.

Niðurstaðan sem mér finnst hafa komið út úr landsfundi Sjálfstfl. er að menn hafa viðurkennt það, samþykkt það sem stefnu Sjálfstfl., að leggja auðlindagjald ofan á óbreytt kvótabraskskerfi. Allt annað verður óbreytt þeim til handa sem aflaheimildirnar hafa.