Guðjón A. Kristjánsson (andsvar):
Herra forseti. Það er alveg sjálfsagt að hressa upp á minni hv. þm. Það var eftir 1993 sem þurfti að skera verulega niður kvóta á Íslandsmiðum og fórum við alveg niður í 155 þús. tonn ef mig minnir rétt. Það var hins vegar eftir að við vorum búnir að setja hér á einstefnukvótakerfi sem við gerðum 1990. Frá og með árinu 1990 voru útgerðarmönnum fengnar varanlegar eignarheimildir yfir aflaheimildum. Fram að því höfðu menn bæði sóknarkerfi og aflamarkskerfi og gátu, eins og ég sagði áður, endurraðað sér í útgerðarforminu. Sá útgerðarmáti sem var á árabilinu 1980 til 1990 var því bæði sóknarmarkskvóti og aflamarkskvóti. Þar af leiðandi höfðu menn í sókn sinni, eins og áður var, sjósóknarrétt.