Össur Skarphéðinsson:
Herra forseti. Ég vil eins og hv. þm. Ögmundur Jónasson taka í megindráttum undir þau sjónarmið sem koma fram í þessari tillögu. Ég er þeirrar skoðunar að öflugt og sjálfstætt þjóðarútvarp verði að vera til staðar og að það sé forsenda þess að hægt sé að halda uppi lýðræðislegri umfjöllun. Eitt af því sem ég tek undir með hv. flm. Sverri Hermannssyni er að í vaxandi mæli sjáum við að Ríkisútvarpið stendur í flokkspólitískum skugga. Við sjáum auðvitað að valdamenn í samfélaginu hafa reynt að beita aðstöðu sinni til þess að ráða þar inn fólk og þeir hafa gert það. Við skulum ekkert vera að skafa utan af því.
Ég er algerlega sammála því sem fram kemur í máli hv. flm. að nauðsynlegt sé að tryggja að þjóðarútvarpið verði raunverulega sjálfstætt og að við búum svo um hnúta, alveg burt séð frá því hverjir eru í valdastólum hverju sinni, að flokkspólitísk áhrif og tengsl verði útilokuð. Það á að útiloka þau frá þjóðarútvarpinu. Og ég tel að sú tillaga sem hv. flm. Sverrir Hermannsson leggur hér til geti orðið mikilvægt skref að þeim áfanga. Það er margt í greinargerðinni hjá hv. þm. sem ég er ákaflega glaður með. Ég er sömu skoðunar og hann með að við þurfum að gera það algjörlega skýrt að Ríkisútvarpið verði ekki gert að hlutafélagi.
Herra forseti. Fyrir einhverjum árum hefði ég e.t.v. talað öðruvísi. Ég var á sínum tíma nokkuð hallur undir það að rekstrarformi Ríkisútvarpsins yrði breytt til þess að gera það sveigjanlegra í rekstri. Ég sé hins vegar með hvaða hætti menn hafa farið með það form. Ég er algjörlega andvígur því að til greina komi að selja Ríkisútvarpið. Ég er hins vegar sannfærður um að valdamiklir stjórnmálaflokkar, valdamiklir menn innan þeirra, séu þeirrar skoðunar að æskilegt væri að gera það í framtíðinni. Við höfum auðvitað séð hugmyndir um að selja hluta af Ríkisútvarpinu. Við munum þegar stjórnmálaflokkur hélt landsfund fyrir nokkrum árum og ekkert kom út af þeim landsfundi sem þótti pólitískt merkilegt nema að það var ákveðið að efla trúna í landinu og að selja Rás 2.
Herra forseti. Ég tel að ef þessari stofnun yrði breytt í hlutafélag væri það vísbending um vilja ríkisvaldsins til þess að stíga síðar skref í átt að sölu. Ég er því algjörlega andvígur. Niðurstaða mín eftir að hafa hlýtt á mál hv. flm. var sú að tillagan sem hann flytur hér væri ekki síst sett fram af umhyggju hans fyrir íslenskri tungu. Mér sýndist sem í máli hans gætti nokkurrar svartsýni um framvindu málsins, framvindu íslenskrar tungu. Auðvitað hljóta menn að staldra við og hlusta þegar slíkur maður talar, sem hefur verið menntmrh. með miklum ágætum og sem talar tunguna með betri og merkilegri hætti en ákaflega margir aðrir Íslendingar sem nú eru á dögum. Ég tel þess vegna að við þurfum að hlusta á þessi varnaðarorð. Ein af þeim leiðum sem við getum notað til þess að sporna við öfugþróun sem við sjáum einmitt varðandi tunguna er að efla Ríkisútvarpið sem miðil fræðslu. Ég tel að þau rök sem hv. þm. flytur hér fyrir því hlutverki Ríkisútvarpsins séu nokkuð góð. Ég er þó ekki alveg sammála hv. þm. um að útvarpið svari ekki áhuga manna fyrir fræðslu. Ég er þeirrar skoðunar að hljóðvarpið hafi staðið sig ákaflega vel í þeirri grein. Ég tel hins vegar að sjónvarpið, sá meiður stofnunarinnar, hafi mjög látið sinn hlut liggja eftir í þeim efnum.
Herra forseti. Ég gæti auðvitað farið nokkrum orðum um þá hugmynd sem hv. þm. setur fram varðandi yfirstjórn Ríkisútvarpsins. Að vissu marki er ég henni sammála en þetta er eitt af því sem við þurfum að skoða betur. Við erum sammála um að losa þurfi Ríkisútvarpið undan pólitískri misnotkun, hættunni á pólitískri misnotkun, hættunni á pólitísku oki. Hvaða leiðir eigum við að fara til þess? Ég held að við séum sammála um að útvarpsráð eins og það er í dag heyri fortíðinni til. Það er engum til gagns og alls ekki Ríkisútvarpinu.
Eigum við að styrkja Ríkisútvarpið með því að taka það algjörlega út af auglýsingamarkaði? Hver eru rökin fyrir því? Það má færa þau rök sem hv. flm. tæpti aðeins á í sínu máli að ef Ríkisútvarpið er í miklum mæli háð auglýsingum á samkeppnismarkaði sveiflast hagur þess auðvitað mjög með sveiflum þjóðarbúsins. Það þýðir, eins og við horfum fram á núna, að stofnunin getur horft fram á fjárþurrð sem nemur hundruðum milljóna. Þetta er auðvitað ákaflega óæskilegt varðandi stofnun af þessu tagi. Ég er þess vegna hallur undir þá hugmynd, andstætt hv. þm. Ögmundi Jónassyni, að það sé einnar messu virði að skoða það rækilega að taka stofnunina algjörlega úr auglýsingasamkeppni við aðra fjölmiðla.
Ég held líka, herra forseti, að eins og málin eru að þróast á fjölmiðlamarkaði í dag gæti það með vissum hætti styrkt aðra kima fjölmiðlamarkaðarins og það er nauðsynlegt til þess að tryggja lýðræðislega umræðu í samfélaginu. Hún er ekki nógu sterk í dag, m.a. út af því hvernig þróunin er á fjölmiðlamarkaðnum þar sem við sjáum að allt hnígur í átt að vaxandi samþjöppun.
Herra forseti. Hv. þm. leggur til að þingið kjósi nefnd sem hafi innan vébanda sinna fulltrúa allra þingflokka og að þessi nefnd eigi að komast að niðurstöðu og semja frv. um breyttan rekstur Ríkisútvarpsins. Ég tel af og frá að svo viðamiklu máli verði lokið á sex mánuðum en mér finnst allt í lagi að gera áhlaup að því og tel að þessi nálgun hv. þm. sé prýðileg.