[prenta uppsett í dálka] 16. fundur, 127. lþ.
Össur Skarphéðinsson (andsvar):
Herra forseti. Það er nú ákaflega sjaldgæft að hv. þm. Ögmundur Jónasson komi hingað og gerist málsvari auglýsingamarkaðarins í landinu.
En hv. þm. urðu á örlítil rökfræðileg glöp. Hann benti á að hætta væri á því, ef Ríkisútvarpið væri tekið út af auglýsingamarkaði, að þá þyrfti að skera niður starfsemi þess. Hv. þm. tilheyrir flokki sem hóf umræðu utan dagskrár einmitt vegna þess að stjórnvöld voru í óðaönn við að skera niður starfsemi Ríkisútvarpsins. Hvers vegna? Vegna þess að það kreppti að á auglýsingamarkaði. Hringekja rakanna er því komin fullan hring í þessu máli.
Menn standa frammi fyrir þrennu varðandi fjármögnun Ríkisútvarpsins. Í fyrsta lagi að hækka nefskattinn, afnotagjöldin. Í öðru lagi að láta það að fullu á fjárlög og í þriðja lagi að halda áfram þeirri blöndu sem við höfum nú.
Ég held að hv. þm. Ögmundur Jónasson nái ekki því markmiði sem hann vill ná með aðferðinni sem hann virðist fylgja, þ.e. óbreyttu ástandi. Hann og flokkur hans hefur sjálfur bent á skafankana sem fylgja því. Með þeim hætti er Ríkisútvarpið mjög háð sveiflum markaðarins, sem geta verið æðikrappar eins og reynsla síðustu missira hefur sýnt. Það leiðir til þess að jafnvel á miðju fjárlagaári getur voldug og burðug stofnun eins og Ríkisútvarpið allt í einu lent í þeirri djúpu kreppu sem hún virðist stödd í núna í fjárhagslegu tilliti. Ég held að minni mitt bresti ekki þegar ég rifja það upp að fjölmiðlar hafa upplýst að hundruð milljóna skorti.
Ég geri mér auðvitað grein fyrir því að það væri ekki eins og að smella fingri að breyta þessu. Það mundi kosta allmiklar fórnir. Við erum hins vegar að tala um stefnu til framtíðar. Auðvitað tökum við ekki ákvörðunin um þá stefnu hér. Það er eitt af því sem yrði reifað í nefndinni.