[prenta uppsett í dálka] 20. fundur, 127. lþ.
Sjávarútvegsráðherra (Árni M. Mathiesen) (andsvar):
Herra forseti. Varðandi spurningar hv. þm. Péturs Blöndals --- í fyrsta lagi hafa ekki verið settar neinar reglur varðandi 3. gr. um hvernig að þessu verður staðið en reynt verður að skoða þetta á efnislegum forsendum þannig að þessar heimildir nýtist þeim sem verða fyrir einhverjum aflasamdrætti vegna þessa. Það er rétt hjá honum að sameining sveitarfélaga að undanförnu hefur auðvitað gert skilgreiningar á þessum hugtökum erfiðari. Þess vegna er verið að tala um sjávarbyggðir en ekki sveitarfélög. Það eru þær einingar sem maður getur litið á sem sérstakar byggðir og byggja á veiðum þessara báta.
Hins vegar er ekki gert ráð fyrir því að sveitarfélögin úthluti þessum veiðiheimildum. Það er ráðherra sem úthlutar þeim á sama hátt og hann úthlutar öðrum heimildum sem 9. gr. fjallar um, svokallaður Jöfnunarsjóðspottur eða 12 þúsund tonnin sem þar eru, og sjútvrh. hefur úthlutað, nú síðast undanfarin ár vegna brests í rækju á nokkrum veiðisvæðum.
Síðan varðandi 7. gr. Út af fyrir sig er ekki verið að úthluta nýjum kvóta í þessu tilfelli, keilu- og lönguúthlutuninni er ekki lokið. Ekki var öllum kvótanum úthlutað 1. sept. vegna óvissu um tölur, og þeirri úthlutun lýkur væntanlega ekki fyrr en þetta frv. hefur verið samþykkt.
Varðandi karfann er þar um mjög litla hlutdeild að ræða, og ég held að flestir væru sammála mér um að það væri innan skekkjumarka hvað varðar heildaraflamarkið á karfanum, og því verður væntanlega bætt við áður útgefið heildaraflamark.