Stjórn fiskveiða

Föstudaginn 02. nóvember 2001, kl. 14:29:17 (1119)

2001-11-02 14:29:17# 127. lþ. 20.7 fundur 193. mál: #A stjórn fiskveiða# (krókaaflamarksbátar) frv., EOK (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 20. fundur, 127. lþ.

[14:29]

Einar Oddur Kristjánsson (andsvar):

Herra forseti. Ef einhver hv. þm. telur að ég hafi gert sér rangt til eða lítið úr sjónarmiðum sínum, þá biðst ég bara hér með innilega afsökunar. Það var alls ekki hugsun mín. En meining mín er alveg tær varðandi hvað stjórnmálaflokkarnir, þ.e. forusta flokkanna hefur sett á oddinn og hefur yfirgnæft allar umræðurnar um mörg missiri. Það er: Eigum við að fara fyrningarleið eða auðlindaskattsleið? Þetta hefur verið forsíðan, þetta hafa verið fyrirsagnirnar í allri umræðunni um sjávarútveg og að mínum dómi tekið allt of mikið pláss vegna þess að þetta er bara deila um keisarans skegg.

Aðalatriðið er hitt sem ég hef margsinnis lýst og ég ætla ekki að gera lítið úr því að margir kunna að hafa áhyggjur af því og það er vel og við skulum reyna að hafa öll áhyggjur af því, því að það er sannarlega ástæða til.