Stjórn fiskveiða

Föstudaginn 02. nóvember 2001, kl. 15:38:02 (1130)

2001-11-02 15:38:02# 127. lþ. 20.7 fundur 193. mál: #A stjórn fiskveiða# (krókaaflamarksbátar) frv., GAK (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 20. fundur, 127. lþ.

[15:38]

Guðjón A. Kristjánsson (andsvar):

Herra forseti. Bara svona af því að það kom fram í máli hv. þm. að við í sjútvn. þyrftum að taka margt til athugunar, m.a. stöðu aflamarksbáta --- hann nefndi nú reyndar 40--200 tonn. Ég vil bara minna á það að ég og sá hæstv. forseti sem hér situr í stól núna fluttum á sl. þingi tillögu um að lagfæra stöðu skipa frá 0--20, frá 20--40, 40--60, 60--100, 100--150 og 150--200, aflamarksskipa sem hefðu minni kvóta en 80 tonn, hefðu leigt til sín á undanförnum missirum meira en 40 tonn --- þó var það ekki skilyrði gagnvart minnstu bátunum. Allt var þetta gert í þeim tilgangi að leitast við að aðstoða menn á aflamarksskipunum --- sem hv. þm. gerði að umtalsefni í ræðu sinni --- menn sem hafa lifað nánast við sult og seyru og verið að halda uppi leigugreifum með því að borga þeim sérstakt gjald fyrir leigu á aflaheimildum. Ætlunin var að tryggja þeim aðlögunartíma til þess að lifa af fram að heildarendurskoðun kerfisins. Nú virðist þessi heildarendurskoðun eingöngu snúa orðið að því hvort menn borgi X milljónir í auðlindagjald eða ekki en allt annað á að vera óbreytt.

Ég mun vissulega beita mér fyrir því, hv. þm., að taka umræðu um stöðu aflamarksbátanna í sjútvn.