Stjórn fiskveiða

Föstudaginn 02. nóvember 2001, kl. 17:10:01 (1155)

2001-11-02 17:10:01# 127. lþ. 20.7 fundur 193. mál: #A stjórn fiskveiða# (krókaaflamarksbátar) frv., sjútvrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 20. fundur, 127. lþ.

[17:10]

Sjávarútvegsráðherra (Árni M. Mathiesen) (andsvar):

Herra forseti. Ég átta mig ekki alveg á hvernig byggðakvótinn komst inn í þessa umræðu. Ég var ekki að tala um hann og ekki að vísa til hans. Ég var að vísa til þeirra úthlutana sem eru samkvæmt 9. gr. og þær hafa verið framseljanlegar.

Í þessu tilfelli er um að ræða árlega úthlutun til krókaaflamarksbáta vegna tiltekinna byggða. Ef það eru brögð að því að sá kvóti sé framseldur þannig að hann fari annað þá er auðvitað forsendan fyrir úthlutuninni brostin. Ég var ekki að tala um byggðakvóta í þessu sambandi, alls ekki.

Hins vegar gæti það verið, eftir að búið er að úthluta á krókaaflamarksbáta innan tiltekins sveitarfélags, að það reyndist hagkvæmara að framselja á milli báta innan sveitarfélagsins. Þá sæi ég ekki að neinum forsendum úthlutunarinnar hefði verið velt. Þar af leiðandi væri engin ástæða til þess að breyta úthlutun til þeirra staða í framtíðinni.

Eins og fram hefur komið hafa ekki verið settar neinar reglur um þetta fram að þessu. Það er heldur ekki lagaheimild til úthlutunarinnar. Ég hef hins vegar vitnað í það hvernig staðið hefur verið að úthlutunum á hinum svokölluðum 12 þús. tonnum í 9. gr. Þar hafa ekki verið nein vandamál af þessu tagi svo ég hafi tekið eftir.