Miðvikudaginn 07. nóvember 2001, kl. 16:07:08 (1321)
2001-11-07 16:07:08# 127. lþ. 24.96 fundur 116#B Suðurnesjaskógar# (um fundarstjórn), SJóh
[prenta uppsett í dálka] 24. fundur, 127. lþ.
[16:07]
Sigríður Jóhannesdóttir:
Hæstv. forseti. Til gamans langar mig að koma á framfæri vísu sem hæstv. heilbrrh. gaukaði að mér undir umræðum áðan um Suðurnesjaskóga og Suðurlandsskóga. Hún er svohljóðandi:
Hugur Kristjáns dvaldi á grænum grundum,
á gráum hraunum sér hann kosti nóga.
Lofaði mörgum ljúfum góðum stundum
í lundum nýrra Suðurnesjaskóga.