Rannsókn kjörbréfs

Mánudaginn 12. nóvember 2001, kl. 15:06:05 (1395)

2001-11-12 15:06:05# 127. lþ. 26.1 fundur 121#B rannsókn kjörbréfs#, EKG
[prenta uppsett í dálka] 26. fundur, 127. lþ.

[15:06]

Frsm. kjörbréfanefndar (Einar K. Guðfinnsson):

Virðulegi forseti. Kjörbréfanefnd kom saman og fór yfir kjörbréf Gunnars Pálssonar, 2. varaþm. Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs í Austurl. sem landskjörstjórn gaf út fyrr á þessum degi.

Kjörbréfanefnd leggur einróma til að kjörbréf Gunnars Pálssonar verði samþykkt.