[prenta uppsett í dálka] 33. fundur, 127. lþ.
Kristján Pálsson:
Herra forseti. Ég vil taka undir það með mönnum sem hér hafa talað að áhyggjur af skógrækt eins og þær hafa komið fram í þessum sal eru algjörlega óþarfar. Hv. þm. Tómas Ingi Olrich kom einmitt inn á það að einungis 5% eru eftir af þeim skógi sem hér var við landnám. Á Suðurnesjum var talið að allt land þar frá ystu nesjum og upp til fjalla hefði verið þakið birkiskógi sem væri um tvær mannhæðir yst og upp í fjórar mannhæðir upp við fjöllin. En sú mynd sem við sjáum í dag sýnir að ekkert er eftir. Það er ekkert skjól fyrir fugla eða dýr, þannig að aðstæður þar fyrir fuglalíf á Íslandi eru náttúrlega allt aðrar og verri en þær voru. Mér finnst því ekki spurning um hvort rækta eigi tré, heldur hvernig tré eigi að rækta.