[prenta uppsett í dálka] 38. fundur, 127. lþ.
Ásta Möller:
Herra forseti. Ég vil þakka fyrirspyrjanda fyrirspurnina því að hún er afar mikilvæg. Guðmundur Ólafsson hagfræðingur benti nýverið á að verð matvöru og annarrar neysluvöru hefði tekið stórt stökk á árinu 1998 og sú þróun hefur haldið áfram. Þessar hækkanir eiga sér ekki hliðstæðu erlendis. Gögn benda til þess að þessi stökk tengist sameiningu stórra matvöruverslana og fákeppni sé ein helsta undirliggjandi orsök hás matvöruverðs.
Yfirleitt fer sameining fyrirtækja fram undir merkjum hagræðingar en samkvæmt fræðunum ætti það að skila sér í betra verði til neytenda. Hið gagnstæða hefur gerst hér á landi. Matvöruverð hefur hækkað sem aldrei fyrr og er hærra hér á landi en hægt er að una sér við. T.d. hefur verið bent á að verð á grænmeti hér á landi er 25% hærra en í Evrópu. Fákeppni er til staðar og fákeppni hefur ætíð unnið gegn neytendum. Það hefur verið orðaður grunur um ólögmæta viðskiptahætti og því er full ástæða til að skoða verðmyndun matvöruverðs hér á landi og ég hvet til þess að fullur kraftur verði settur í málið.