Skýrsla utanríkisráðherra um utanríkismál

Fimmtudaginn 29. nóvember 2001, kl. 15:25:44 (2195)

2001-11-29 15:25:44# 127. lþ. 40.1 fundur 176#B skýrsla utanríkisráðherra um utanríkismál# (munnl. skýrsla), ÞSveinb (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 40. fundur, 127. lþ.

[15:25]

Þórunn Sveinbjarnardóttir (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. fyrir að leiðrétta þennan misskilning minn.

Auðvitað er það þannig eins og hv. þm. tók fram að fleiri trúarbrögð hafa verið misnotuð og því miður notuð sem skálkaskjól, eins og það var orðað, ofstækismanna hvaða nafni sem þeir nefnast. Við hljótum öll að vera sammála um að við berjumst gegn því í hvaða mynd sem það birtist.